sunnudagur, júlí 09, 2006

 
Mamma á markaðinum í Pemba. Við keyptum okkur sinn ástarpunginn hvor og brögðuðust þeir ágætlega. Sölufólkið var vingjarnlegt og fannst gaman að láta taka af sér mynd eins og oftast hér í Mósambík þar sem fáir eiga myndavél og finnst nýnæmi í myndatökum. Posted by Picasa

 

Sólsetur við Mapútóflóa


Sólsetur við Mapútóflóa síðastliðinn sunnudag. Orin vinur minn tók myndina en hann kom í heimsókn og fór með okkur til Pemba þó hann gæti ekki stoppað þar nema í 2 og hálfan dag. Ferðin þangað tók 4 tíma með tveimur millilendingum þar sem Mapútó er mjög sunnarlega en Pemba norðarlega í Mósambík. Posted by Picasa

 
Fjórar af þessum stúlkum voru að leika sér á ströndinni og við fórum og tókum af þeim myndir og sýndum þeim svo. Þetta vakti svo mikla lukku að þær vildu ólmar fara með okkur að synda. Þær voru að vísu ekki syntar svo við hoppuðum með þeim við sjávarmálið þar sem grunnt er. Síðan fjölgaði þeim og þarna er mamma í hópnum. Á seinni myndinni er mamma að sóla sig við sundlaugina á hótelinu og það sér yfir ströndina.

 Posted by Picasa

 

Wimbi ströndin í Pemba

Þá hef ég loksins tíma til að skrifa nokkrar línur en þó ekki þar sem ég er að leggja af stað í vikuferð til Gaza og Inhambane sýslna klukkan sex í fyrramálið. Ég kom heim seint í gærkvöld frá þriggja daga ráðstefnu kvenna- og menntamálaráðuneytisins. Ráðstefnan er haldin árlega til kynna ársplan ráðuneytisins og gefa frjálsum félagasamtökum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að segja álit sitt og koma með athugasemdir. Þarna voru líka kynnt nýjar stefnur ríkisstjórnarinnar í málefnum fatlaðra og aldraðra, rannsókn á heimilisofbeldi o.s.frv. Þetta var mjög lærdómsrík ferð og líka gott að kynnast samstarfsaðilum innan ráðuneytisins betur.
Dagana fyrir og eftir ráðstefnuna gafst svo tími til að dýfa tánum aðeins í Indlandshaf þar sem mjög fallegar strendur eru í kring um Pemba borg, eins og sjá má á myndinni og öðrum myndum hér á eftir. Mamma var með mér í ferðinni þar sem hún kom til mín á laugardaginn og naut hún lífsins á ströndinni á meðan ég var á ráðstefnunni. Við gistum á tveimur hótelum þar sem erfitt var að fá gistingu vegna mannfjöldans á ráðstefnunni. Síðustu tvær næturnar vorum við á Nautilus hótelinu sem myndin er tekin frá og gistum í litlum tveggja herbergja kofa ásamt einni samstarfskonu minni. Síðan voru nokkrir metrar í sjóinn. Þar sem júní og júlí eru kaldasti tími ársins voru fáir ferðamenn þarna og stundum nánast hægt að hafa ströndina útaf fyrir sig, nema hvað börn staðarins reyndu að drýgja tekjur heimilisins með sölu ýmissa minjagripa. Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

[ Skoða gestabók ] [ Kvitta í gestabókina ]
Sækið ykkur ókeypis gestabók hér